Ævintýralandið Narnía
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ævintýralandið Narnía (enska: The Chronicles of Narnia) er ritröð ævintýrabóka eftir C. S. Lewis. Bækurnar eru sjö og fjalla að mestu um fjögur börn sem fyrir tilviljun flækjast í ævintýraheim Narníu, þar sem dýrin geta talað, galdrar eru viðteknir, og hið góða stríðir gegn hinu illa. Sögurnar útskýra á aðgengilegan hátt fyrir börn nokkur af þemunum í kristnum sið. Þó er rétt að taka fram að bækurnar eru skrifaðar svo að hægt er að lesa þær án þess að vera með kristni sérstaklega í huga. Disney-fyrirtækið hefur kvikmyndað Ljónið, nornina og skápinn, en sú mynd kom út í desember 2005, og er að kvikmynda Kaspían konungsson, sem á að frumsýna í desember 2007.
Pauline Baynes myndskreytti fyrstu útgefnu ritröðina.
[breyta] Listi yfir bækurnar í ritröðinni
Tvær aðferðir eru til við að raða bókunum, eftir útgáfuári eða í röðinni sem þær eiga að gerast í. Þegar þær voru fyrst gefnar út voru bækurnar ekki tölusettar, en þegar þær komu fyrst út í Bandríkjunum tölusetti útgefandinn Macmillan þær í útgáfuröð. Þegar HarperCollins bókaútgáfan tók við bókaflokknum raðaði hún þeim upp í þeirri röð sem sögurnar gerast, að tillögu Douglas Gresham, stjúpsonar Lewis.
[breyta] Útgáfuröð
- Ljónið, nornin og skápurinn — The Lion, the Witch and the Wardrobe (1950)
- Kaspían konungsson — Prince Caspian (1951)
- Sigling Dagfara — The Voyage of the Dawn Treader (1952)
- Silfurstóllinn — The Silver Chair (1953)
- Hesturinn og drengurinn hans — The Horse and His Boy (1954)
- Frændi töframannsins — The Magician's Nephew (1955)
- Lokaorrustan — The Last Battle (1956)
[breyta] Tímaröð
- Frændi töframannsins
- Ljónið, nornin og skápurinn
- Hesturinn og drengurinn hans
- Kaspían konungsson
- Sigling Dagfara
- Silfurstóllinn
- Lokaorrustan