Ungbarn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ungbarn, eða smábarn, er mjög ungt barn, yfirleitt ekki eldra en eins til tveggja ára gamalt. Enska orðið „infant“, sem oft er notað í svipuðum skilningi, þýðir (á latínu) „getur ekki talað“, og er sú merking í samræmi við þann skilning að þegar börn hafi lært að tala séu þau ekki lengur ungbörn.