Orrustan við Kórinþu
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Orrustan við Kórinþu var háð árið 146 f.Kr. Í henni áttust við herir Rómaveldis og Kórinþu. Í orrustunni var Kórinþuborg lögð í rúst.
Rómverjar, undir stjórn Luciusar Mummiusar, lögðu borgina í eyði í kjölfar umsáturs árið 146 f.Kr. Þegar Mummius náði borginni ásitt valdlétt hann drepa alla karlmenn, seldi konur og börn í þrældóm og brenndi síðan borgina. Hann hlaut viðurnefnið Achaicus sem sigurvegari yfir Akkajubandalaginu. Fornleyfarannsóknir benda til þess að einhver búseta hafi verið á svæðinu næstu árin en Júlíus Caesar stofnaði borgina að nýju árið 44 f.Kr., skömmu áður en hann var ráðinn af dögum.
[breyta] Heimild
- Greinin „Battle of Corinth (146 BC)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 10. ágúst 2006.