Nafnháttur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nafnháttur er einn fallhátta sagna.
Nafnháttur er nafn sagnar (nafnorðsmynd), svipað og nefnifall nafnorðs, og þekkist á smáorðinu (nafnháttarmerkinu) að sem undanfara; að vera, að fara, að geta o.s.frv. Sagnir í nafnhætti enda oftast á -a ; lesa, skrifa, skoða. Í nokkrum sögnum hefur -a fallið á brott eftir -á ; spá, sjá, fá o.fl. Tvær sagnir enda á -u ; munu, skulu; og ein á -o ; þvo. Nafnháttur er algengastur í nútíð.