Metrodóros
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Metrodóros (331–278 f.Kr.) var forngrískur heimspekingur og fylgismaður Epikúrosar. Þrátt fyrir að hann hafi verið einn fjögurra meginmálsvara epikúrismans hafa einungis brot úr ritum hans varðveist. Epikúros sagði hann ekki vera frumlegan hugsuð.
[breyta] Ritverk
Þekktir eru titlar ritverka Metrodórosar. Meðal þeirra eru:
- Gagnrýni á Demókrítos
- Gegn eðlisfræðingunum (3 bækur)
- Gegn fræðurunum (9 bækur)
- Gegn rökfræðingunum
- Gegn Tímókratesi
- Leiðin til viskunnar
- Um auð
- Um breytingar
- Um heilsubresti Epikúrosar
- Um skynjanir
- Um stórmennsku
- Um ættgöfgi
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimild
- Greinin „Metrodorus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. mars 2006.