Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Notandi:Kristinn Ágúst Friðfinnsson - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Notandi:Kristinn Ágúst Friðfinnsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Kristinn Ágúst Friðfinnsson (f. 27. ágúst 1953 í Reykjavík) er sóknarprestur í Hraungerðisprestakalli og trúnaðarmaður fatlaðra á Suðurlandi.

Mynd:Kristinn Ágúst Friðfinnsson.jpg
Kristinn Ágúst Friðfinnsson

Efnisyfirlit

[breyta] Ætt og uppruni

Foreldrar Kristins eru þau Ósk Sophusdóttir (fædd 20. janúar 1930), húsfreyja og sjúkraliði og Friðfinnur Kristinsson (fæddur 27. október 1926, látinn 26. apríl 1982), framkvæmdastjóri í Reykjavík.

[breyta] Fjölskylda

Maki Kristins er Anna Margrét Guðmundsdóttir (fædd 15. september 1955), hjúkrunarfræðingur BSc frá Háskóla Íslands og djáknanemi.

Börn Kristins og Önnu Margrétar eru: Friðfinnur Freyr, rekstrarfræðinemi við Háskólann í Reykjavík (fæddur 18. júlí 1980), Melkorka Mjöll (fædd 22. júlí 1981), BA í heimspeki, nú (júní 2006) stud. theol., gift Skúla Skúlasyni, (fæddur 22. apríl 1980) á Keldum, Magnús Már, framhaldsskólanemi, (fæddur 29. júlí 1986), og Kolbeinn Karl, framhaldsskólanemi, (fæddur 27. júní 1987).

Mynd:Lokaútgáfa5.jpg
Kristinn ásamt eiginkonu sinni, Önnu Margréti Guðmundsdóttur. Að baki þeim eru Kolbeinn Karl, Friðfinnur Freyr, Melkorka Mjöll, eiginmaður hennar, Skúli Skúlason, og Magnús Már.

[breyta] Menntun

Kristinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1975. Árin 1975 - 1978 nam hann söng við einsöngvaradeild Tónlistarskóla Reykjavíkur. Kristinn nam guðfræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan cand.theol.-gráðu árið 1981. Lokaritgerð hans var á sviði félagslegrar siðfræði. Kristinn stundaði aukinheldur nám í sifjarétti. Frá árinu 1981 stundaði Kristinn nám og rannsóknir í trúarlífssálarfræði, einkum um guðshugtakið í umfjöllun geðlækna og sálfræðinga á 20. öld. Hann nam einnig almenn og sérhæfð sálgæslufræði og klíníska samtalstækni. Hann hefur sótt námskeið og fyrirlestra á sviði sálgæslufræði jafnt innan lands og utan. Kristinn stundar nú (ágúst 2006) nám á meistarastigi í sálgæslufræði.

[breyta] Helstu störf

Stundakennari í siðfræði við Þroskaþjálfaskóla Íslands 1979 - 1981 og 1984 - 1986. Dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið frá 1978, fréttaritari 1982 - 1984. Aðstoð í Hveragerðis- og Selfossprestaköllum sumarið 1979. Settur sóknarprestur í Staðarprestakalli í Súgandafirði 1.10. 1981, skipaður 1.6. 1982 - 31.5. 1984. Stundakennari við Grunnskóla Suðureyrar 1981 - 1984. Framkvæmdastjóri Skálholtsútgáfunnar 1984 - 1985. Tryggingaráðgjöf 1986 - 1988 og í hlutastarfi til 1991. Settur sóknarprestur í Seljaprestakalli í Reykjavík (í forföllum) 1.9. - 31.10. 1988 og dómkirkjuprestur (einnig í forföllum) 1.1. - 30.6. 1989. Aðstoðarprestur dómprófasts, sr. Guðmundar Þorsteinssonar, 1.10. 1989 - 31.5. 1991. Hefur annast reglulegt helgihald í safnkirkju Árbæjarsafns í Reykjavík síðan 1989. Skipaður prestur í Hraungerðisprestakalli í Árnessýslu frá 1.3. 1991. Hann þjónar við Hraungerðiskirkju, Laugardælakirkju og Villingaholtskirkju. Leiðbeinandi við Þingborgarskóla 1992 - 1993. Trúnaðarmaður fatlaðra á Suðurlandi frá 1.6. 1993. Settur sóknarprestur á Selfossi, við prestaskipti þar, 1.8. - 30.9. 1994. Tungumálakennsla á Selfossi fyrir almenning frá 1995; dagskrárgerð fyrir Útvarp Suðurlands, fyrirlestrar og námskeið á vegum fyrirtækisins Rætt og ritað frá 1996. Hefur síðan árið 2000 þrisvar verið settur meðdómsmaður í sifjaréttarmálum á héraðsdómsstigi.

[breyta] Félags- og trúnaðarstörf

Forseti Nemendafélags MH 1974 - 1975. Í Stúdentaráði HÍ 1976 - 1978 og í stjórn þess 1977 - 1978. Fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1976 - 1978. Í kennslu- og rannsóknanefnd HÍ 1976 - 1978 og í hönnunarnefnd nýbygginga á háskólalóð 1978 - 1981. Í stjórn Æskulýðssambands Íslands 1977 - 1981. Kjörinn af borgarstjórn í Æskulýðsráð Reykjavíkur 1978, varaformaður til 1981, formaður samstarfsnefndar Reykjavíkurborgar og Bústaðakirkju um rekstur æskulýðsmiðstöðvarinnar Bústaða 1978 - 81. Fulltrúi á ráðstefnum og fundum innan lands og utan um námsmanna- og æskulýðsmál 1976 - 1981, m.a. fulltrúi í Evrópuráði æskunnar í Hollandi 1979 og fulltrúi Reykjavíkurborgar á höfuðborgarráðstefnu Norðurlanda um æskulýðsmál 1980. Fulltrúi á Evrópuþingi presta 1994. Í æskulýðsnefnd Þjóðkirkjunnar 1981 - 1984. Skipaður af menntamálaráðherra 1983 í undirbúningsnefnd Alþjóðaárs æskunnar 1985. Í stjórn Prestafélags Íslands 1992 - 1998, varaformaður félagsins um tíma en lengst af kjarafulltrúi. Beitti sér fyrir endurskoðun á siðareglum presta 1992 og átti sæti í nefnd til að semja frumvarp að siðareglum sem öðluðust gildi 1984. Skipaður af dóms- og kirkjumálaráðherra í nefnd 1995 til að skoða fyrirkomulag þóknunar til presta fyrir embættisverk. Formaður sunddeildar Ungmennafélags Selfoss og í aðalstjórn UMFS frá 1999. Hefur auk þess átt sæti í fjölmörgum nefndum og ráðum á vegum hins íslenska ríkis, Reykjavíkurborgar og frjálsra félagasamtaka.

Kristinn hefur komið fram í tíu kvikmyndum. Hann lék ferjumanninn í Börnum náttúrunnar (1991), læriföður í Myrkrahöðingjanum (2000), prestinn í lokaatriði 101 Reykjavík (2000). Auk þess kom hann fram í Hvítum mávum (1985), stuttmynd byggðri á þjóðsögu um niðurkvaðningu draugs í Villingaholtskirkjugarði (2004), Bjólfskviðu (2005) o.fl. myndum. Kristinn mun koma fram í myndinni Mýrin sem nú (ágúst 2006) er í vinnslu.

[breyta] Ritstörf

[breyta] Greinaskrif

Kristinn hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit, m.a.:

  • „Að víkka hugmyndina um hlutverk kirkjunnar“, Kirkjuritið 3, 1980
  • „Ný kirkjuvitund“, sama rit 1, 1984.
  • „Stattu með mér: um störf trúnaðarmanna fatlaðra“, Þroskahjálp, 1995.

[breyta] Þýðingar

  • Fjársjóður jólanna e. Norman Vincent Peale, 1993
  • Máttur bænarinnar (meðþýð.) e. Norman Vincent Peale, 1994, 2. útg. 2000.

[breyta] Ritstjórnar- og ritnefndarstörf

  • Ritstjóri Orðsins 12. - 13. árg. 1977 - 1979.
  • Ritstýrði og annaðist útgáfu Fréttabréfs Húseigendafélagsins um tíma
  • Sat í ritnefnd Kirkjuritsins.
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com