Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Hannibal Valdimarsson - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Hannibal Valdimarsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hannibal Valdimarsson
Enlarge
Hannibal Valdimarsson

Hannibal Valdimarsson (13. janúar 19031. september 1991) var einn umdeildasti og um leið litríkasti stjórnmálaleiðtoginn á vinstri kantinum á Íslandi um og upp úr miðri 20. öld. Hann var mikill baráttumaður fyrir réttindum verkafólks og trúði á nauðsyn sterkrar verkalýðshreyfingar. Hannibal var formaður í tveimur stjórnmálaflokkum, Alþýðuflokknum og Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og kosningabandalaginu Alþýðubandalagið. Hann var þó alla tíð eindreginn jafnaðarmaður. Hann barðist oft af kappi fyrir skoðunum sínum en þótti ekki alltaf auðveldur í samstarfi og var lítið gefinn fyrir málamiðlanir. Hannibal hóf þáttöku í pólitík á Ísafirði upp úr 1930 og varð fljótlega leiðtogi þeirra sem kallaðir voru "Ísafjarðarkratar" og þóttu mjög harðsnúnir og róttækir þó þeir ættu litla samstöðu með kommúnistum. Hannibal neitaði meðal annars að fylgja Héðni Valdimarssyni til liðs við kommúnista þegar Sósíalistaflokkurinn var stofnaður 1939. Hann var fyrst kosinn á þing 1946 fyrir Alþýðuflokkinn. Seinna klauf hann þó Alþýðuflokkinn og gekk til samstarfs við Sósíalistaflokkinn í kosningabandalagi 1956 sem forsvarsmaður Málfundafélags jafnaðarmanna. Þegar kosningabandalaginu var breytt í flokk 1968 og hann sá fyrir að sósíalistar mundu ráða lögum og lofum í honum sagði hann skilið við fyrri samstarfsmenn og stofnaði nýjan flokk. Hannibal var einnig forseti Alþýðusambands Íslands 1954 - 1971.


Efnisyfirlit

[breyta] Fjölskylda

Hannibal var fæddur í Fremri-Arnardal í Eyrarhreppi 13. janúar 1903, dó 1. september 1991. Foreldrar hans voru Valdimar Jónsson bóndi og Elín Hannibalsdóttir. Hannibal var bróðir Finnboga Rúts Valdimarssonar alþingismanns. Hann er faðir Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrum utanríkisráðherra.

Hannibal var kvæntur Sólveigu Sigríði Ólafsdóttur (fædd 24. febrúar 1904). Þau áttu saman börnin: Arnór (fæddur 1934), Ólafur Kristján (fæddur 1935), Elín (fædd 1936), Guðríður (fædd 1937), Jón Baldvin (fæddur 1939). Hannibal átti einnig soninn Ingjald (fæddur 1951) með Hólmfríði Ingjaldsdóttur.

[breyta] Menntun

Hannibal tók gagnfræðapróf á Akureyri 1922 og kennarapróf frá Johnstrup Statsseminarium í Danmörku 1927.

[breyta] Stjórnmál

Hannibal sat á alþingi frá 1946 til 1974 fyrir Alþýðuflokkinn, Alþýðubandalagið og Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Hann var félags- og heilbrigðismálaráðherra 19561958, samgöngu- og félagsmálaráðherra 19711973. Hann var formaður Alþýðuflokksins 19521954, Alþýðubandalagsins (kosningabandalags Sósíalistaflokksins og Málfundafélags jafnaðarmanna) 19561968 og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna frá stofnun þeirra 19691974. Þegar Alþýðubandalagið var gert að stjórnmálaflokki 1968 sagði hann sig frá því og stofnaði Samtök frjálslyndra og vinstri manna.

[breyta] Heimildir

Á öðrum tungumálum
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com