Gabbró
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gabbró er veðurþolin og hörð bergtegund. Gabbró er basískt djúpberg, það er ein tegund af storkubergi. Það hefur sömu efnasamsetningu og basaltgler (sem oft ummyndast í móberg), blágrýti og grágrýti en kæling þess við myndun hefur verið hægari. Gabbró er grófkristallað vegna þess að það storknar djúpt í jörðinni og kristallarnir hafa nægan tíma til að vaxa.
Gabbrósteinn úr Hoffelli í Hornafirði er á útveggjum lágbyggingar og súlum hábyggingar húss Seðlabanka Íslands við Sölvhólsgötu.
Nokkur fjöll á Íslandi eru úr gabbró. Þar má nefna Vestrahorn og Eystrahorn. Hornin eru berghleifar,innskot úr djúpbergi sem hefur storknað djúpt í jarðskorpunni.
[breyta] Heimildir
- Vísindavefurinn: „Hver er munurinn á grágrýti og blágrýti?“
- Greinin „Gabbro“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 19.febrúar 2006.