Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Baugsmálið - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Baugsmálið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Atburður í gangi: Þessi grein eða greinarhluti fjallar um líðandi atburð. Innihaldið gæti breyst snögglega eða farið með staðreyndarvillur.

Baugsmálið nefnist málaferli ríkissaksóknara á hendur eigendum Baugs Group hf. og öðrum, auk umræðu um pólítísk tengsl við málið og annað. Samfara þessu hefur borið á Baugi Group í umfjöllun fjölmiðla vegna hins svonefnda fjölmiðlafrumvarps 2004 og kaup Baugs á fyrirtækjum erlendis og innlendis.

Efnisyfirlit

[breyta] Upphaf

Málið kom fyrst fram í fjölmiðlum þegar Jón Gerald Sullenberger, eigandi fyrirtækisins Nordica lagði fram kæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni þáverandi stjórnarformanni Baugs. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði af þeim sökum húsleit í Skútuvogi 7 í Reykjavík þann 28. ágúst 2002 þar sem höfuðstöðvar Baugs voru. Í framhaldi af þessu lagði lögmaður Baugs, Hreinn Loftsson, fram athugasemdir við Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem hann sagði húsleitina ólögmæta. [1] Jón Ásgeir gaf svo út fréttatilkynningu rúmlega viku seinna þar sem hann ásakaði Jón Gerald um að skáldað ákæruna og var harðorður gagnvart vinnubrögðum ríkislögreglustjóra. [2] Þá var framkvæmd önnur húsleit, nú í höfuðstöðvum SMS verslunarfélagsins í Færeyjum sem Baugur átti helmingshlut í og ákæru Baugs um ógildingu fyrri húsleitar hafnað. Niðurstaða Héraðsdóms var kærð til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá. Undir lok árs 2003 voru eignir Baugs Group í fyrirtækjum í Bretlandi einu 39 milljarðar. [3]

[breyta] Breytingar innan stjórnar Baugs

Umfjöllunin olli miklum taugatitringi meðal Baugsmanna. Tryggvi Jónsson hætti sem forstjóri Baugs og hóf störf sem forstjóri Heklu bílaumboðs. Jón Ásgeir tók við af honum.

Guðfinna S. Bjarnadóttir og Þorgeir Baldursson sögðu sig úr stjórn Baugs í mars 2003 vegna þess að trúnaðarupplýsingum, fundargerðir stjórnarinnar, hafði verið lekið til Fréttablaðsins og birt þar. [4] Jón Ásgeir sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem hann tók fyrir að vera heimildarmaður Fréttablaðsins.

[breyta] Ákærur

Ákærurnar voru fjörutíu og eru fyrir eftirfarandi meint lögbrot: fjárdráttur, umboðssvik, tollsvik, rangfærslu skjala, brot gegn; lögum um hlutafélög, hegningarlögum, lögum um bókhald og gegn lögum um ársreikninga.

Sakborningar:

Á 18 ákæruliðum voru hins vegar slíkir ágallar að mati Héraðsdóms Reykjavíkur, að dómurinn vísaði málinu í heild sinni frá dómi. Ríkislögreglustjóri kærði þann úrskurð til Hæstaréttar sem að kvað upp sinn úrskurð í málinu 10. október. Samkvæmt þeim úrskurði var ákæruliðum 1-32 vísað frá dómi en eftir standa 8 (33-40) ákæruliðir sem að fjalla um meint brot á lögum um ársreikninga og almennum hegningarlögum og einnig á tollalögum og skjalafals-ákvæðum í almennu hegningarlögunum. Þessum ákæruliðum var vísað til efnismeðferðar í héraðsdómi. Ekki er enn ljóst hvort að ríkislögreglustjóri hyggst gefa út nýja og endurskoðaða ákæru vegna þeirra ákæruliða sem vísað var frá.

[breyta] Nýjast

Í lok september 2005 stóðu gífurlegar deilur á milli Fréttablaðsins (sem er í eigu Baugs) annars vegar og Morgunblaðsins hins vegar um meint afskipti Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins af upphafi málsins og einnig vegna birtingar Fréttablaðsins á tölvupósti á milli Styrmis, Jóns Geralds Sullenbergers og Jónínu Benediktsdóttur, sem Morgunblaðið telur vera stolin gögn. Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur kveðið upp lögbannsúrskurð að beiðni Jónínu, sem kveður á um að bannað sé að birta eða vitna til þessara gagna.


[breyta] Heimildir

[breyta] Tenglar

Þessi grein er stubbur sem ekki hefur verið settur í undirflokk.
  Þú getur hjálpað til með því að bæta við hana, eða með því að flokka hana betur.  

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com