Smyrill (félag)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Smyrill er félag hægrimanna í Menntaskólanum við Hamrahlíð (MH). Félagið var stofnað árið 2004 af Kára Þór Kjartanssyni, Jóni Felix Sigurðarsyni og Aroni Ólafssyni, ungum MH-ingum með álíkar hugsjónir. Markmið félagsins er að boða hugsjónir frjálshyggjunnar um einstaklingsfrelsi og frjálsan markað. Félagsmenn vilja breyta þeirri sósíalísku ásýnd sem MH og nemendur hans hafa haft í gegnum tíðina.
Smyrill er í samstarfi við önnur hægrifélög í framhaldskólum á landsvísu sem aðhyllast hugsjónir frjálshyggjumanna. Innan félagsins er unnið mjög fjölbreytt starf. Félagið heldur meðal annars fjölda kappræðu- og umræðufunda. Félagsfundir eru haldnir reglulega. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð til inngöngu í félagið á helstu stöðum í MH.
Á aðalfundi félagsins 2005 var ný fimm manna stjórn kosin ásamt varastjórn. Núverandi formaður er Jónas Margeir Ingólfson. Aðrir í stjórn eru Kári Þór Kjartansson ritari, Aron Ólafsson, Dagur Kári Jónsson og Þorsteinn Kári Jónsson.
Í varastjórn sitja Benedikt og Jón Felix Sigurðsson.
Aðalfundur félagsins er haldinn árlega og þá á byrjun haustannar. Aðild að Smyrli geta allir skráðir nemendur í dagskóla og/eða Öldungadeild MH fengið. Inntökubeiðni í félagið verður að vera samþykkt af stjórn félagsins, en annars er hún ógild. Ræður meirihluti atkvæða þeirri ákvörðun.
Um stjórnarmenn:
Kári Þór Kjartansson er einnig ritstjóri vefritsins Hugsjónir.is www.hugsjonir.is
Benedikt Hallgrímsson situr í ritstjórn vefritsins Hugsjónir.is www.hugsjonir.is