Miri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Miri er íslensk síðrokkhljómsveit. Hún var stofnuð sumarið 2003 á Seyðisfirði. Meðlimir sveitarinnar eru Árni Geir (gítar), Ívar Pétur (trommur), Guðmundur Jónsson (óhljóð), Óttar (gítar) og Hjalti Jón (bassi). Sumarið 2005 á L.Ung.A tóku þeir svo upp plötu í samvinnu við Curver, en hann sá um upptökur og hljóðblöndun. Sú plata nefnist Fallegt Þorp EP og er stuttskífa sem inniheldur 4 lög.
[breyta] Tenglar
- Upplýsingar um sveitina, myndir og lög – Hægt er að hlusta á plötuna Fallegt Þorp EP.