Lundi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lundi | |||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Lundi (Fratercula arctica)
|
|||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
|
|||||||||||||||
Fratercula arctica (Linnaeus, 1758) |
|||||||||||||||
|
Lundi (fræðiheiti: Fratercula arctica) er svartfugl af ættkvísl lunda. Latneska heitið Fratercula merkir „smábróðir“ og vísar til litarins á fjaðraham fuglsins sem minnir á klæðnað munka, en fuglinn er líka oft kallaður „prófastur“ á íslensku. Goggur lundans er marglitur röndóttur um fengitímann. Lundar eru sjófuglar sem kafa sér til matar. Þeir verpa í stórum nýlendum í holum sem þeir grafa í jarðveginn. Lundinn er staðfugl en heldur sig úti á rúmsjó yfir veturinn.