Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kaupfélag Steingrímsfjarðar er eitt af fáum kaupfélögum á Íslandi sem enn starfar (árið 2006). Það hefur höfuðstöðvar á Hólmavík á Ströndum og rekur þar verslun og söluskála á Hólmavík, auk þess sem það heldur úti flutningabílum sem aka á milli Reykjavíkur og Hólmavíkur. Einnig rekur Kaupfélag Steingrímsfjarðar (skammstafað KSH) verslanir á Drangsnesi við norðanverðan Steingrímsfjörð og í Norðurfirði í Árneshreppi. Loks má geta þess að Kaupfélag Steingrímsfjarðar á helmingshlut í rækjuvinnslunni Hólmadrangi ehf. á Hólmavík.
Kaupfélag Steingrímsfjarðar hét áður Verslunarfélag Steingrímsfjarðar og var stofnað 1898.