José Sócrates
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
José Sócrates Carvalho Pinto de Sousa (fæddur í Vilar de Maçada þann 6. september, 1957) er portúgalskur stjórnmálamaður, formaður Sósíalistaflokks Portúgals og núverandi og jafnframt 15. forsætisráðherra landsins, frá 12. mars, 2005.
José Sócrates er verkfræðingur og hefur verið meðlimur sósíalistaflokksins síðan 1987. Árið 1995 gerðist hann umhverfisráðherra í fyrstu ríkisstjórn António Guterres. Tveimur árum síðar varð hann ráðherra íþrótta og heilsumála. Hann tók aftur sæti umhverfisráðherra í annarri ríkisstjórn António Guterres og var í stjórnarandstöðu frá árinu 2002 þegar flokkur Durão Barroso, nú forseta Evrópusambandsins komst til valda. Hann var kosinn formaður sósíalistaflokksins með 80% atkvæða í september árið 2004. José Sócrates var jafnframt einn af skipuleggjendum Evrópumótsins í knattspyrnu sem haldið var árið 2004 í Portúgal.
Hann er fráskilinn og á tvö börn.