Jaakko Hintikka
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jaakko Hintikka (fæddur 12. janúar 1929) er rökfræðingur og heimspekingur, fæddur í Vantaa í Finnlandi. Hann er prófessor við Boston University.
Hintikka vann Rolf Schock verðlaunin í rökfræði og heimspeki árið 2005 „vegna brautryðjendastarfs síns og framlags til rökgreiningar á háttahugtökum, einkum hugtökunum þekking og skoðun“. Hann er talinn vera upphafsmaður formlegrar þekkingarfræðilegrar rökfræði og brautryðjandi á sviði merkingarfræði í háttarökfræði, sem lagði til formlega merkingarfræði, efnislega hliðstæða merkingarfræði Sauls Kripke. Hintikka er einnig mikilvægur ritskýrandi verka Ludwigs Wittgenstein.
Hintikka er mikilvirkur höfundur, og er höfundur eða meðhöfundur yfir þrjátíu bóka og meira en 300 fræðilegra ritgerða um stærðfræðilega og heimspekilega rökfræði, þekkingarfræði, málspeki og vísindaheimspeki. Verk hans hafa verið þýdd á níu tungumál. Hann var aðalritstjóri tímaritsins Synthèse (ISSN 0039-7857) frá 1962 til 2002 auk þess að vera ráðgjafi í ritstjórn annarra tímarita.
Hann var fyrsti varaforseti Fédération Internationale des Sociétés de Philosophie, varaforseti Institut International de Philosophie (1993–1996), og meðlimur í American Philosophical Association, alþjóðlegra samtaka um sögu og heimspeki vísindanna, meðlimur í Association for Symbolic Logic og stjórnarmeðlimur í Philosophy of Science Association.
[breyta] Valin rit eftir Hintikka
- The Principles of Mathematics Revisited ISBN 0521624983
- Paradigms for Language Theory and Other Essays ISBN 0792347803
- Lingua Universalis vs Calculus Ratiocinator ISBN 0792342461
- Inquiry as Inquiry: A Logic of Scientific Discovery ISBN 079235477X
- Language, Truth and Logic in Mathematics ISBN 0792347668
- Ludwig Wittgenstein: Half-Truths and One-and-a-Half-Truths ISBN 0792340914
- Analyses of Aristotle ISBN 1402020406
- The Logic of Epistemology and the Epistemology of Logic ISBN 0792300408
[breyta] Tengt efni
- Willard Van Orman Quine
- Saul Kripke
- Rudolph Carnap
- Ludwig Wittgenstein
[breyta] Heimildir
Greinin er lausleg þýðing á færslu úr ensku Wikipedia sem byggir á upplýsingum frá heimasíðu Jaakko Hintikka.