Hegðun
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hegðun eða atferli er það sem tiltekin lífvera gerir, og getur verið bæði meðvituð og ómeðvituð, viljastýrð sem og sjálfvirk. Hegðun lífvera ræðst af taugakerfi þeirra, svo því flóknara sem taugakerfið er, því flóknari getur hegðun hennar að öllu jöfnu orðið. Flókin taugakerfi bjóða einnig upp á fleiri tækifæri til þess að breyta hegðun lífverunnar með námi. Stundum er líka talað um hegðun dauðra hluta eins og tölva þótt deila megi um hvort það sé rétt notkun á hugtakinu þar sem hegðun krefst geranda, nokkuð sem ekki allir eru sammála um að dauðir hlutir geti verið.