Eivør Pálsdóttir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eivør Pálsdóttir, f. 21. júlí 1983 í Syðrugøta í Færeyjum, er söngkona og tónskáld.
Foreldrar Eivarar eru Sædis Eilifsdóttir og Páll Jacobsen. Eivør er oft líkt við íslensku söngkonuna Björk og kölluð hin færeyska Björk.
Efnisyfirlit |
[breyta] Ferill
Tólf ára að aldri fór Eivør í söngferðalag til Ítalíu sem einsöngvari með færeyskum karlakór og þrettán ára gömul kom hún fyrst fram í færeysku sjónvarpi. Sama ár vann hún færeyska söngvakeppni. Fimmtán ára gömul gekk hún til liðs við hljómsveitina Clickhaze.
Ári seinna eða árið 2000 kom út hennar fyrsta tónskífa Eivør Pálsdóttir. Árið 2001 vann hún tónlistarverðlaunin Prix Føroyar. Árið 2002 fór Eivør til Reykjavíkur í tónlistarnám. Hún varð aðalsöngvari jasshljómsveitarinnar Yggdrasils sem gaf út sína fyrstu tónskífu það ár. Eivør gaf út rokk albúm með Clickhaze sama sumar og fór í hljómleikaferð til Færeyja, Svíþjóðar, Danmerkur (Hróarskelduhátíðin), Íslands og Grænlands.
Önnur sólóplata Eivarar var Krákan og var Eivør tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í þremur flokkum árið 2003 og hlaut verðlaun sem besti söngvari og besti flytjandi ársins. Eivør söng einnig með symfóníuhljómsveit Færeyja og söng einsöng í óperunni Firra.
Síðasta plata hennar er eivør sem kom út í nóvember 2004
Eivør var valin Færeyingur ársins 2004. Árið 2005 þá fékk hún íslensku leiklistarverðlaunin Gríma fyrir tónverk og flutning í verkinu Úlfhamssaga.
[breyta] Útgáfa
- Eivør Pálsdóttir (SHD 50, tutl 2000)
- Clickhaze (HJF 91, tutl 2002)
- Yggdrasil (HJF 88, tutl 2002)
- krákan (12T001, 12 tónar 2003)
- eivør (12T010, 12 tónar 2004)
- Trøllabundin (ásamt the Big band of Danmarks Radio 2005)
[breyta] Tenglar
- Eivor.com Vefsetur Eivarar
- Eivør á Myspace (fjórir söngvar)
- Tutl.com (færeyskt efni)
- Í Gøtu ein dag (Færeyskur texti gamallar ballöðu, sunginn á fyrstu plötu Eivarar)
- Faroe Mission in London - Dimmalætting Awards Eivør... (Fréttabréf færeyska útvarpsins frá 14. febrúar 2005)
- Eivør í BBC4, 17 mars 2006
[breyta] Heimild
- Greinin „Eivør Pálsdóttir“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. september 2006.