Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Þormóður Torfason - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Þormóður Torfason

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Þormóður Torfason
Þormóður Torfason

Þormóður Torfason, Thormod Torfæus, Torvæus (27. maí 163631. janúar 1719) var sagnaritari og fornritaþýðandi sem bjó mestanpart ævi sinnar í Noregi. Hann var sonur Torfa Erlendssonar sýslumanns á Stafnesi og Þórdísar Bergsveinsdóttur, prests á Útskálum. Hann fæddist í Engey. Varð stúdent frá Skálholtsskóla 1654 og fór þá strax utan. Lærði í Kaupmannahafnarháskóla og varð fornritaþýðandi í þjónustu Danakonungs eftir 1659. Árið 1662 var hann sendur til að safna handritum á Íslandi og flutti þá til Kaupmannahafnar frá Brynjólfi Sveinssyni handritin Konungsbók Eddukvæða og Gráskinnuhandrit Njáls sögu.

Árið 1664 varð hann kamerarius í Stafangursstifti og bjó þar síðan á Stangarlandi á eyjunni Körmt (Karmøy) úti fyrir Rogalandi þar sem gröf hans var inni í Ólafskirkju. Árið 1682 var hann gerður að sagnaritara Noregs á launum hjá konungi og árið 1704 að assessor í háskólaráði. Hann átti mikið samstarf við Árna Magnússon og nýtti handrit Árna mikið við sagnaritun sína þar sem hann fylgdi fyrst og fremst íslenskum frásögnum. Árni fékk handrit hans að honum látnum.

Efnisyfirlit

[breyta] Morðið á Sámsey

1671 ferðaðist hann til Íslands til að ganga frá erfðamálum. Í bakaleiðinni, árið 1672, varð hann skipreika á Sámsey við Jótland í Danmörku. Hermt var að nokkrir drukknir Íslendingar ásamt danska vertinum, Hans Pedersen, hefðu ruðst inn til hans eftir að hann var genginn til náða. Greip hann þá til korðans og lagði til vertsins með þeim afleiðingum að hann lést. Fyrir þetta var hann dæmdur til dauða, en var síðan náðaður og dæmdur til að skrifta opinberlega og greiða hundrað ríkisdali í manngjöld.

[breyta] Fjölskylda

Þormóður giftist árið 1665 Önnu Hansdóttur, auðugri ekkju sem lést árið 1695. Árið 1702 átti hann svo aðra Önnu Hansdóttur, sem hafði verið bústýra hans. Hann átti ekki börn með þeim, en var síðar talinn hafa átt mörg börn í lausaleik.

[breyta] Eftirmæli

Þormóður hefur verið kallaður „faðir norskrar sagnfræði“, fyrir hið stóra rit sitt um sögu Noregs. Við hann er kennd tónlistarhátíð „Tormod Torfæus Rock & Blues Festival“ sem haldin er árlega í Körmt.

[breyta] Verk

  • Commentatio historica de rebus gestis Færoensium (1695)
  • Orcades sive rerum Orcadensium historiæ libri tres (1697 og 1715)
  • Series dynastarum et regum Daniæ (1702 og 1705)
  • Historia Vinlandiæ antiqvæ sive partis Americæ septentrionalis (1705)
  • Historia Hrolfi krakii (1705 og 1715)
  • Groenlandia antiqva (1706)
  • Trifolium historicum (1707)
  • Historia rerum Norvegicarum I-IV (1711)
  • Torfæana (1777)
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com