Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Þorgils Gjallandi - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Þorgils Gjallandi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Þorgils Gjallandi, öðru nafni Jón Stefánsson fæddist á Skútustöðum við Mývatn 2. júní árið 1851 og dó 1915. Hann bjó alla tíð í Þingeyjarsýslu og var hreppstjóri þar frá árinu 1890. Hann fór aðeins einu sinni út fyrir mörk hennar. Foreldrar hans voru Stefán Helgason og Guðrún Ólafsdóttir. Þau eignuðust saman fjögur börn og komst Þorgils einn á legg. Hann missti móður sína þegar hann var 9 ára og föður sinn þegar hann var aðeins 17 ára. Hann tók við búinu eftir dauða föður síns en að ári liðnu gerðist hann vinnumaður á ýmsum bæjum í sveitinni.

Þorgils var einn sérstæðasti liðsmaður raunsæisstefnunnar í íslenskum bókmenntum að því leyti að hann var bóndi og að öllu leyti sjálfmenntaður til skrifta. Upphafið af ferli Þorgils er að finna í sveitablöðum mývetninga á 8. og 9. áratug 19. aldar. Hann var natúralisti á evrópska vísu og gekk út frá dýrseðli mannsins og uppruna hans á meðal skepna náttúrunnar, enda eru söguhetjur hans ekki vítisenglar heldur kynferðislegar verur sem stjórnast af þörfum og aðstæðum. Ástin var ekki bústaður eilífrar hugsjónar að hans dómi, heldur ástríða sem krefst útrásar, siðlaus og saklaus í senn af því hún er sama og eðli mannsins. Ástarsögum Þorgils líkur oftast nær með ósköpum því persónur hans geta ekki komið eðli sínu og lífi saman við skilyrði sem krefjast sjálfshöfnunar og bælingar. Ástæðan er fyrst og fremst sú að samfélagið hefur með siðareglum sínum afskræmt manninn, breytt honum úr fjörmiklu og kraftmiklu dýri sem stjórnast af kátum og ruddafengum hvötum í viðbjóðslegan varg, síhungraðan blóðdverg sem leitar sér svölunar í myrkrinu, lymskur og ljúgandi.

Árið 1892 gaf Þorgils frá sér bókina Ofan úr sveitum en hún hafði að geyma róttækustu sögur raunsæisstefnunnar fram til þess tíma, enda flestu snobbuðu fólki í landinu mikil hneykslunarhella. Árið 1902 kom síðan út skáldsagan Upp við Fossa og ekki varð hún til að bæta úr fyrir þessum uppreisnarmanni. Hún var almennt álitin vargur í véum og vart húsum hæf, síst þar sem börn og unglingar komust í hana. Samt var ekki örvænt um að þessi höfundur ætti siðsamlega hlið því að hann hafði sent frá sér allmargar dýrasögur allt frá árinu 1893 sem fólk kunni að meta. Árið 1910 kom úrval þessara sagna út undir nafninu Dýrasögur 1. Auk þessara verka skrifaði hann margar aðrar sögur og einnig greinar og erindi um margvísleg efni. Saga Þorgils er því saga afreksmanns sem ekki lét stéttarstöðu sína þagga niður í sér eða gagnrýni berja sig til hlýðni. Þorgils var orðinn tæplega fertugur þegar hann hóf að rita ádeilusögur sínar.

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com