Saparmyrat Nyýazow
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Saparmyrat Ataýewiç Nyýazow (f. 19. febrúar 1940) (stundum ritað Saparmurat Niyazov, en það er ensk umritun á nafninu byggð á umritunarkerfi fyrir rússnesku) hefur verið valdamesti maður Túrkmenistan frá 1985. Hann er einnig þekktur sem „Serdar Saparmyrat Türkmenbaşy hinn mikli“, eða einfaldlega „Türkmenbaşy“ (oft ritað Turkmenbashi á ensku).
Nyýazow hefur vakið mikla athygli um allan heim fyrir sérviskulega og jafnvel stórskrýtna stjórnarhætti í landi sínu, en hafa ber í huga að hann er í raun einráður í landinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Æviágrip
Faðir Nyýazows dó í orrustu við Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni og það sem eftir var fjölskyldunnar fórst í öflugum jarðskjálfta 1948, jarðskjálfta sem nánast jafnaði borgina Aşgabat við jörðu. Hann var því aðeins átta ára þegar honum var komið fyrir á sovésku munaðarleysingjahæli, en nokkru seinna var honum komið fyrir hjá fjarskyldum ættingjum. 1962 gekk hann í kommúnistaflokkinn og fékk þar skjótan frama. Hann varð formaður kommúnistaflokks Túrkmenistan 1985 og studdi byltinguna gegn Mikhail Gorbachov í Rússlandi 1991. Eftir fall Sovétríkjanna hélt Nyýazow völdum og varð fyrsti forseti landsins.
Þann 22. október 1993 gaf hann sjálfum sér titilinn Türkmenbaşy (eða Түркменбашы) sem þýðir lauslega „Foringi allra Turkmena“. Hinn 29. desember 1999 kaus þing landsins, Majlis, hann forseta til lífstíðar. Þess ber að geta að þingið hefur oft verið sagt algjörlega undir hælum Nyýazows.
[breyta] Persónudýrkun
Nyýazow er einræðisherra og er þekktur fyrir yfirgengilega persónudýrkun. Þar sem hann trúir því staðfastlega að Túrkmenistan vanti þjóðarímynd hefur hann reynt að móta landið eftir eigin skoðunum. Hann endurnefndi borgina Krasnovodsk við Kaspíahaf Türkmenbaşy eftir sjálfum sér, auk þess sem hann hefur nefnt nokkra skóla, flugvelli og jafnvel loftstein í höfuðið á sjálfum sér. Árið 2002 skipaði hann svo fyrir að brauð skyldi hér eftir kallað Gurbansoltan Eje eftir látinni móður hans, í stað venjulega túrkmenska orðsins yfir brauð, chorek. Andlit Nyýazows er á öllum peningaseðlum og andlit hans vakir yfir almenningi með stórum plaggötum á opinberum stöðum. Styttur af honum og móður hans eru á víð og dreif um Túrkmenistan, jafnvel í miðri Kara Kum-eyðimörkinni, og stór gullstytta af honum er á toppi hæstu byggingar Aşgabat. Styttan snýst þannig að Nyýazow snúi alltaf að sólu. Þá hefur hann ákveðið að byggja risavaxna höll í Aşgabat til að minnast stjórnartíðar hans. Þótt ótrúlegt sé hefur Nyýazow látið hafa eftir sér að hann sé ekkert mikið fyrir þessa persónudýrkun “Ég er persónulega á móti því að sjá myndir og styttur af mér úti á götu – en þetta er það sem fólkið vill.”
Menntakerfið kennir ungum Túrkmenum að elska Nyýazow, og skrifaði hann sjálfur meginhluta kennsluefnisins. Aðalnámsefnið er saga eftir Nyýazow, Ruhnama, eða „Bók sálarinnar“. Námsbækur frá Sovéttímabilinu hafa verið bannaðar og er því lítið að finna í bókasöfnum landsins annað en verk Nyýazows.
Einnig ber að nefna að Nyýazow skipti um stafróf Túrkmena og er nýja stafrófið byggt á því latneska (en það gamla á kýrillísku). Þá breytti hann árið 2002 nöfnum daga og mánaða eftir frægum Túrkmenum. Þannig heitir janúar „Türkmenbaşy“ í höfuðið á honum sjálfum og apríl heitir „Gurbansoltan Eje“ í höfuðið á móður hans.
[breyta] Forsetatilskipanir
Nyýazow, forseti til lífstíðar, hefur gefið út margar forsetatilskipanir. Sem dæmi um þær eru:
- Sjónvarpsfréttamönnum er bannað að nota farða þar sem Nyýazow á í erfiðleikum með að greina í sundur mennina og konurnar
- Óperur eru bannaðar sem og ballett, en Nyýazow hefur lýst þeim sem „ónauðsynlegum“
- Nyýazow ákvað að banna reykingar á almannafæri árið 1997, en þá þurfi hann einmitt sjálfur að hætta að reykja eftir hjartaaðgerð
- Það að hreyfa varirnar við tónlist er bannað (e. lip syncing)
- 2001 var ungum mönnum bannað að hafa sítt hár eða skegg
- 2003 rak hann 15.000 heilbrigðisstarfsmenn og skipaði þess í stað hermönnum (með enga þjálfun) að ganga í störf þeirra
- Í mars 2005 fyrirskipaði hann lokun allra spítala fyrir utan Aşgabat og sagði að ef fólk væri veikt gæti það snúið sér til höfuðborgarinnar.
- Nyýazow fyrirskipaði einnig lokun allra bókasafna í sveitum landsins og kvað ástæðuna vera þá að hinn almenni Túrkmeni læsi hvort eð er ekkert.
- Hann hefur líka bannað það að ungt fólk fái sér gullfyllingar eða gullbrýr í tennur. Þess í stað hefur hann ráðlagt því að tyggja bein í staðinn, það verndi tennurnar.
- Í ágúst 2005 bannaði hann spilun tónlistarupptaka í sjónvarpi, á almannafæri eða í brúðkaupum. Ástæðan er sú að hann vill vernda tónlistarhefð Túrkmena.
- Í nóvember 2005 fyrirskipaði hann að læknar skyldu sverja honum eið í stað hins venjubundna Hippókratesareiðs.
- Í desember 2005 bannaði hann tölvuleiki, enda væru þeir allt of ofbeldisfullir fyrir unga Túrkmena.
- Sama mánuð vakti hann athygli fyrir að fyrirskipa olíumálaráðherrra landsins að læra ensku á 6 mánuðum eða taka poka sinn ella.
[breyta] Stjórnarstefna og utanríkistengsl
Nyýazow hefur oft vakið athygli fyrir stjórnarstefnu sína. Þannig fyriskipaði hann í ágúst 2004 byggingu risavaxinnar íshallar í miðri eyðimörk og fyrir stuttu réðst hann í byggingu dýragarðs. Nyýazow hefur lagt mikla áherslu á að fá mörgæsir í dýragarð sinn, enda telur hann hungur blasa við þeim vegna hlýnandi loftslags.
Einungis tveimur trúfélögum er leyft að hafa tilbeiðsluhús í Túrkmenistan: rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni og Sunni-múslimum, en þeir síðarnefndu hafa meiri stuðning ríkisins. Starfsemi erlendra menningarsamtaka er með öllu bönnuð í landinu.
Eftir meinta morðtilraun hinn 25. nóvember 2002 handtóku yfirvöld stóran hóp meintra samsærismanna og fjölskyldumeðlimi þeirra. Gagnrýnendur halda því fram að tilræðið hafi verið sviðsett til að gefa yfirvöldum ástæðu fyrir fjöldahandtökunum og slá þannig á vaxandi mótstöðu við forsetann.
Sumarið 2004 var dreifiblöðum og bæklingum dreift í höfuðborginni Aşgabat, þar sem hvatt var til þess að Nyýazow yrði steypt af stóli og hann látinn svara til saka. Stjórnvöld áttu í erfiðleikum með að stöðva herferðina og varð það til þess að Nyýazow rak innanríkisráðherrann og skólastjóra lögregluskólans í beinni útsendingu ríkissjónvarpsins.
Sem fyrr segir fyrirskipaði hann að 15.000 heilbrigðisstarfsmenn létu af störfum og óþjálfaðir hermenn kæmu í stað þeirra. Í febrúar 2005 spurði hann „Af hverju ættum við að sóa hæfileikum góðra heilbrigðisstarfsmanna í þorpin þegar þeir ættu með réttu að vera að vinna í höfuðborginni?“ Í mars 2005 fylgdi hann þessum ummælum sínum eftir og lokaði öllum sjúkrahúsum utan höfuðborgarinnar.
Árið 2004 hitti hann kanadíska forsetisráðherrann Jean Chrétien til að ræða olíusamning kanadísks fyrirtækis í Túrkmenistan. Kanadíska stjórnarandstaðan brást hin versta við fregnum af fundinum.
Árið 2005 kom Nyýazow öllum á óvart og lofaði að halda frjálsar og opnar kosningar fyrir árið 2010.