Magnús Guðmundsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Magnús Guðmundsson (6. febrúar 1879, Rútsstöðum í Svínadal — 28. nóvember 1937) var íslenskur stjórnmálamaður.
[breyta] Ævi og störf
Foreldrar Magnúsar voru Guðmundur Þorsteinsson (1847 — 1931) bóndi á Rútstöðum og móðir hans var Björg Magnúsdóttir (1849 — 1920) húsmóðir. Hann giftist 12. október 1907 Sofiu Bogadóttur (1878 — 1948). Þau áttu þrjú börn Bogi Smith, Björg og Þóra. Hann fékk stúdentspróf frá Lærða skólanum 1902 og lögfræðipróf frá Hafnarháskóla 1907. Hann var á þingi frá 1916 til dauðadags 1937. Hann var meðlimur í Íhaldsflokknum og var síðar einn af stofnendum Sjálfstæðisflokksins. Hann starfaði stuttlega sem ráðherra frá 23. júní 1926 til 6. júlí sama árs. Hann var gerður að fjármálaráðherra þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók þátt í gerð ríkisstjórnar í fyrsta skipti.
Fyrirrennari: Sigurður Eggerz |
|
Eftirmaður: Magnús Jónsson |
|||
Fyrirrennari: Jón Magnússon |
|
Eftirmaður: Jón Þorláksson |
|||
Fyrirrennari: |
|
Eftirmaður: Ólafur Thors |
|||
Fyrirrennari: Ólafur Thors |
|
Eftirmaður: Pétur Magnússon |