Flensborg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flensborg eða Flensburg er þýskur bær fyrir botni Flensborgarfjarðar rétt sunnan við landamærin við Danmörku. Íbúar bæjarins er um 80.000. Bærinn er þriðji stærsti bær í sambandslandinu Slésvík-Holtsetalandi.
[breyta] Saga
Flensborg varð til eins og margir aðrir austurjóskir kaupstaðir á 12. öld. Árið 1284 fékk Flensborg kaupstaðarréttindi. Á sama tíma var Maríukirkja við Nyrðratorg reist. Hundrað árum síðar var Nikolajkirkjan reist við Suðurtorg. Miðsvæðið í bænum var þingstaður. Á 15. öld lét Margrét 1. reisa Duborgarhöllina og lést síðar úr pestinni um borð í skipi í Flensborgarhöfn.
Fyrstu velmegunardagar Flensborgar voru frá 1450-1600, þá var bærinn miðpunktur mikillar Eystrasaltsverslunar. Bærinn var stærsti verslunarbær danska konungsríkisins með um 5000 íbúa og kaupflota með 200 skipum.
Annað velmegunartímabíl var frá 1775 til 1806, þegar skip frá bænum sigldu alla leið til Dönsku Vestur-Indía og náðu þar í sykurreyr, tóbak og romm. Frá þessum tíma eru mörg nýklassísk kaupmannshús og yfirstéttarhús í bænum.
Eftir tap Dana við Dybböl, Slagurinn við Dybböl, árið 1864 varð bærinn hluti af þýska keisaradæminu. Árið 1920 var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla og völdu 75% bæjarbúa að bærinn yrði hluti af Þýskalandi fremur en danska konungsríkinu. Bærinn varð því þýskur kaupstaður.
Í dag er bærinn hluti af þýska sambandslandinu Slésvík-Holtsetalandi, sem svo er hluti af Þýskalandi.
Bærinn er verslunarstaður og miðstöð landamæraviðskipta við Dani. Einnig er ferðamannaiðnaðurinn mikilvægur bænum, sem og skipaumferð.
Flensborg er mikill menningarbær, með þýsk og dönsk leikhús, bókasöfn, kirkjur og skóla. Um 4000 nemar stunda nám við Flensborgarháskóla. Í Mörvík er menntamiðstöð þýskra sjóliða.
Handknattleiksfélagið SG Flensborg-Handewitt telst vera eitt fremsta félag handknattleiksliða í Þýskalandi og Evrópu.
[breyta] Tungumál
Í sambandslandinu Slésvík-Holtsetalandi eru töluð fjölmörg tungumál og mállýskur. Hin opinberu tungumál sambandslandsins eru háþýska,lágþýska, ríkisdanska og frísneska. Einnig tala íbúarnir suðurjósku, sem er talin vera mállýska, þó að það sé umdeilt. Í Flensborg er töluð þýska auk dönsku. Norðurfrísneska er ekki lengur töluð í bænum. Í bænum er einnig töluð mállýska sem er kölluð petu eða petuh. Sú mállýska er sambland af háþýsku eða lágþýsku með dönskum áhrifum. Fjölmargir þýskumælandi íbúar Flensborgar skilja dönsku og bera margir þeirra dæmigerð dönsk ættarnöfn.
[breyta] Tenglar
- Heimasíða bæjarsins (á þýsku, dönsku og ensku)
- Flensborg Avis, dagblað fyrir dönskumælandi íbúa bæjarins
- Danska bókasafnið í Flensborg
- Bæjarsafnið í Flensborg
- Um Petuh (á þýsku)