Colin Maclaurin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Colin Maclaurin (febrúar 1698 – 14. júní 1746) var skoskur stærðfræðingur. Hann skaraði fram úr breskum stærðfræðingum í næstu kynslóð á eftir Newton. Hann dýpkaði og bætti við örsmæðarreikning. Í kennslubók hans koma fram margar mikilvægar niðurstöður, en Maclaurin-röð, sem við hann er kennd er í raun bara sérútgáfa af Taylor-röð, sem var þekkt alllöngu áður og er kennd við Brook Taylor.