Arnarfjörður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Arnarfjörður er annar stærsti fjörðurinn á Vestfjörðum eftir Ísafjarðardjúpi og er rétt sunnan við miðju kjálkans. Hann er um 30 km langur inn í botn Dynjandisvogs, 5 til 10 km breiður og afmarkast hið ytra af Kópanesi að sunnan og Sléttanesi að norðan. Innan úr honum skerast nokkrir minni firðir og vogar. Norðan við Langanes sem skiptir firðinum eru Dynjandisvogur og Borgarfjörður. Sunnan Langanes eru Suðurfirðirnir: Bíldudalsvogur, Fossfjörður, Reykjafjörður, Trostansfjörður og Geirþjófsfjörður. Ketildalir heita einu nafni röð af stuttum dölum sem ná eftir allri strandlengjunni á suðurströnd Arnarfjarðar, frá Kópsnesi inn að Bíldudalsvogi. Norðan Arnarfjarðar liggur meðal annars Hrafnseyri, kirkjustaður og fyrrum prestssetur. Þar fæddist, 17. júní 1811, Jón Sigurðsson, einn helsti leiðtogi í frelsisbaráttu íslendinga á 19. öld.
Í botni Borgarfjarðar er Mjólkárvirkjun, sem nýtir vatnsföll ofan af Glámuhálendinu til rafmagnsframleiðslu. Í botni Dynjandisvogs er fossinn Dynjandi sem er mest foss á Vestfjörðum.
Bíldudalur er eina kauptúnið við Arnarfjörð. Það á sér langa og merka sögu, þar var meðal annars einn af verslunarstöðum einokunarverslunarinnar. Fljótlega eftir að verslun var gefin frjáls í lok 18. aldar eignaðist Ólafur Thorlacius verslunina og rak þaðan þilskipaútgerð og flutningaskip og seldi fisk beint til Spánar. Pétur J. Thorsteinsson rak einnig mikinn atvinnurekstur á Bíldudal milli 1880 og 1910 með útgerð og verslun.
Fram undir miðja 20. öld var Arnarfjörður þéttbyggður en nú eru einungis örfáir bæir eftir í byggð. Lítið undirlendi er víðast við fjörðinn og voru flestir bæir í fjarðarbotnum og í fjallshlíðum þar sem eitthvað underlendi var. Sjóróðrar voru stundaðir jafnhliða búskap frá öllum bæjum. Sjósókn var þó erfið á árabátum nema frá þeim bæjum sem voru utarlega í firðinum. Verstöðvar voru því reistar á ystu nesjum þar sem hægt var að lenda árabátum og má víða sjá rústir og aðrar leifar á ystur nesjum.
Í innfjörðum Arnarfjarðar er víða mikil veðursæld þar sem þeir eru umkringdir háum fjöllum og eru þeir víða vaxnir birkikjarri.
Í dag liggja tvö sveitarfélög að Arnarfirði, Ísafjarðarbær að norðan og Vesturbyggð að sunnan en áður voru þrjú sveitarfélög í Arnarfirði: Auðkúluhreppur, Suðurfjarðahreppur og Ketildalahreppur.
[breyta] Landnám
Samkvæmt Landnámu er Arnarfjörður kenndur við landnámsmanninn Örn, en þar segir svo: "Örn var maður ágætur. Hann var frændi Geirmundar heljaskinns. Hann fór af Rogalandi fyrir ofíki Haralds konungs. Hann nam land í Arnarfirði, svo vítt sem hann vildi." Samkvæmt Landnámu keypti Án rauðfeldur Grímsson land af Erni milli Langaness og Stapa í Arnarfirði og bjó sjálfur á Eyri. Dufan, leysingi Ánar, bjó í Dufansdal. Einnig er sagt að: "Ketill ilbreiður son Þorbjarnar tálkna, nam dali alla frá Kópanesi til Dufansdals." Við hann eru Ketildalir kenndir. Og einnig nam Geirþjófur Valþjófsson Suðurfirði alla og bjó í Geirþjófsfirði.