Amtmannsstígur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Amtmannsstígur er gata í Reykjavík. Hún liggur frá Lækjargötu að Ingólfsstræti. Tvær götur koma þvert á Amtmannsstígin en það eru Skólastræti sem endar við götuna og Þingholtsstræti sem þverar hana. Gatan er um það bil 150 metrar, liggur frá vestri til austurs og hækkar mót austri.
Nafn götunnar á rætur sínar að rekja til þess að amtmaður á 19. öldinni reisti sér hús sem stóð við austurenda götunnar.
Við götuna standa fá íbúðahús sem og tvö hús Menntaskólans í Reykjavík og er annað þeirra kallað eftir götunni í daglegu tali nemenda.