30. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jan – Febrúar – Mars | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | ||||
2006 Allir dagar |
30. febrúar er samkvæmt gregoríska tímatalinu ekki til þar sem lengd febrúar er venjulega 28 eða 29 dagar. Þrisvar í sögunni hefur hann hinsvegar talið 30. daga.
Svíþjóð (sem á þeim tíma innihélt Finnland) ætlaði frá og með 1700 að breyta úr júlíska tímatalinu í það gregoríanska með því að sleppa hlaupárum næstu 40 árin. Árið 1700 var þar með ekki hlaupár í Svíþjóð en 1704 og 1708 voru það fyrir mistök þvert á áætlanir Svía og hafði þær afleiðingar að sænska tímatalið varð einum degi á undan því júlíska en tíu dögum á eftir því gregoríanska. Örlítið var bætt úr ruglingnum árið 1712 þegar tveim dögum var bætt við árið sem samsvöruðu 29. febúar í júlíanska tímatalinu og 11. mars í því gregoríanska. Svíar skiptu svo loks algerlega í gregoríanska tímatalið árið 1753.
Árið 1929 kynntu Sovétríkin Byltingartímatal Sovétríkjanna þar sem hver mánuður hafði 30 daga og þeir 5 eða 6 dagar sem eftir stóðu voru mánaðarlausir hátíðisdagar. Var þetta tímatal við lýði í tvö ár eða frá 1930 til 1931 en árið 1932 var aftur farið að nota hefðbundna lengd á mánuðum.
[breyta] Tenglar
- 30. febrúar? (á ensku)
- 30. febrúar1712 (á ensku)
- Tímtatalsbreyting svía (á ensku)
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |