Þingvallavatn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þingvallavatn er stærsta náttúrulega stöðuvatn Íslands og er 83,7 km2 að flatarmáli (Þórisvatn getur orðið allt að 86 km2 eftir að það var gert að miðlunarlóni, áður náði það aðeins 70 km2). Dýpst er vatnið 114m. Mest af vatninu í því kemur beint úr uppsprettum og því er aðeins lítill hluti vatnsins sem rennur í það um ár. Þó renna í Þingvallavatn árnar Villingavatnsá, Ölfusvatnsá og Öxará. Úr því rennur Sogið, en það er stærsta lindá Íslands. Þrjár fiskategundir lifa í Þingvallavatni, en á Íslandi öllu eru aðeins fimm tegundir ferskvatnsfiska. Þær þrjár tegundir eru bleikja, hornsíli og urriði. Í Þingvallavatni eru fjögur afbrigði af bleikju, fleiri en fundist hafa í nokkru öðru vatni í heiminum, og allar eru þær einstakar fyrir vatnið.
[breyta] Heimildir
- „Thingvellir.is - fiskurinn“. Sótt 4. desember 2005.
- „Þingvallavatn“. Sótt 4. desember 2005.
- „Þórisvatn“. Sótt 4. desember 2005.